Skólahald mánudaginn 12. febrúar

Vegna slæmrar veðurspár, fellur skólakstur milli Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla niður mánudaginn 12. febrúar. Skólahald verður eftir sem áður í heimaskólum nemenda og lýkur því kl. 12:15. Frístund og leikskóli verða starfrækt eins og venjulega. Sveitaakstur verður sennilega á eftir áætlun vegna þungar færðar.

Nauðsynlegt er að foreldrar og aðrir forráðamenn nemenda fylgist með veðurspá og meti sjálfir aðstæður og sendi þá ekki í skólann ef tvísýnt er um öryggi vegna veðurs.

Hér er að finna viðmið um skólakstur.

Þegar ekki er fært milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar, verður kennt á báðum stöðum og kennt eftir óveðursstundatöflu.