Hlutverk foreldrafélagsins er að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla.Einnig að hvetja til virkrar þátttöku foreldra í skólastarfi og hagsmunagæsla, aðhald og eftirlit með skólastarfinu.
Stjórn foreldrafélagsins er skipuð 2 fulltrúum frá Stöðvarfirði og 2 fulltrúum frá Breiðdalsvík. Stjórnin er kosin á aðalfundi félagsins sem er haldin byrjun skólaársins til tveggja ára.
-Nafn- -Hlutverk - -Netfang-
Guðný Harðardóttir Formaður gudnyhardar@gmail.com
Bergdís Eva Gunnlaugsdóttir Varaformaður bergdiseva@gmail.com
Valborg Ösp Á. Warrén Gjaldkeri arnadottir@outlook.com
Silja L. Þrastardóttir Ritari siljalind@gmail.com
Lög Foreldrafélags Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla
1. gr.
Félagið heitir: Foreldrafélag Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla.
2. gr.
Félagar eru allir foreldrar / forráðamenn núverandi nemenda skólans.
3. gr.
Markmið félagsins eru:
• að koma á sem bestu sambandi milli skólans og heimila nemenda.
• að vinna að velferð nemenda og styrkja og efla skólann í hvívetna.
• að koma fram með hugmyndir eða óskir um breytingu á starfi skólans.
• vinna að upplýsingamiðlun og fræðslustarfi.
4. gr.
Markmiðum sínum hyggst félagið ná með því að:
• standa fyrir fræðslu- og upplýsingamiðlun til foreldra m.a. virkri Fb síðu félagsins ásamt fræðslufundum.
• veita aðstoð í starfi skólans vegna félagsstarfa og skemmtana nemenda.
• styðja og efla hverja þá starfsemi sem stuðlar að auknum þroska og menningu nemenda.
• taka þátt í samstarfi við önnur foreldrafélög og samtök foreldra.
5. gr.
Foreldrar kjósa tvo fulltrúa í skólaráð. Á aðalfundi skal árlega kjósa einn fulltrúa í skólaráð til tveggja ára.
6. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð fimm fulltrúum foreldra og einum til vara, sem kosnir eru á aðalfundi.
Leitast verði við að í stjórn verði skipaðir fulltrúar foreldra nemenda á öllum stigum, ásamt því að helmingur fulltrúa sé frá hvorum stað, þ.e.a.s. helmingur frá Breiðdal-/svík og hinn helmingur frá Stöðvarfirði. Formaður stjórnar skal kosinn sérstaklega að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Stjórnin skal skipuð varaformanni, ritara, gjaldkera og meðstjórnanda. Aldrei mega fleiri en þrír ganga úr stjórn á aðalfundi.
7. gr.
Stjórnin getur sjálf skipað bekkjartengla, ráð eða nefndir til ýmissa starfa, en stýrir og ber ábyrgð á störfum þeirra. Hún undirbýr og boðar a.m.k. einn félagsfund á vetri auk aðalfundar og afgreiðir samþykktir þeirra. Stjórn félagsins skal halda fundi á a.m.k. 6 vikna fresti yfir skólaveturinn. Hún fylgist með starfi skólans og starfsaðstöðu nemenda.
8. gr.
Aðalfund skal halda í lok hvers skólaárs og telst fundurinn löglegur ef til hans er boðað með 5 daga fyrirvara.
Dagskrá fundarins skal vera:
1. Kosning fundarstjóra og fundarritarr
2. skýrsla stjórnar
3. skýrsla gjaldkera
4. skýrsla skólaráðs
5. lagabreytingar (lög samþykkt)
6. Reikningar lagðir fram til samþykktar
7. kosning nýrrar stjórnar
8. kosning skólaráðs
9. önnur mál
8. gr.
Fulltrúaráðið skal koma saman eigi sjaldnar en þrisvar á skólaárinu og oftar ef þurfa þykir. Fyrsti fundur skal haldinn í upphafi skólaárs. Stjórn félagsins undirbýr og boðar til þessara funda. Þar skulu rædd mál er varða markmið og starf foreldrafélagsins, starf foreldra í bekkjardeildum og verkefni skólaráðs. Fulltrúaráð skal aðstoða stjórn félagsins í stærri verkefnum.
9. gr.
Félagsstjórn skal ekki sinna klögumálum eða hafa afskipti af vandamálum er upp kunna að koma milli einstakra foreldra eða forráðamanna barna og starfsmanna skólans.
10. gr.
Foreldrafélagið skal stuðla að góðum tengslum milli stjórnar foreldrafélagsins og skólaráðs Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar.
Æskilegt framlag til foreldrafélagsins er kr. 2000 á ári frá hverju heimili.
11. gr.
Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi Foreldrafélags Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla.
Samþykkt 20. janúar 2026
|
Breiðdalsvík / Stöðvarfjörður Selnesi 25 / Skólabraut 20 Sími: grunnsk. 470 5570/475 9030 Sími: leikskóli 470 5566/475 9050 Netfang: sto@skolar.fjardabyggd.is |
Umsókn um leyfi og veikindatilkynning fer í gegnum Mentor: 470 5570/475 9030 / sto@skolar.fjardabyggd.is