Bókasafnið á Stöðvarfirði

Almenningssafnið hóf starfsemi árið 1907 og hét þá Lestrarfélag Stöðvarfjarðar og var lengst af í kjallara Samkomuhúss Stöðvarfjarðar.

Skólasafnið tók til starfa árið 1985 þegar kennslubækurnar voru flokkaðar eftir námsgreinum. Þessi tvö söfn voru svo sameinuð þegar flutt var í nýbyggingu grunnskólans árið.

Núverandi starfsmaður er Linda Hugdís Guðmundsdóttir, bókasafnsfræðingur, en hún hóf störf haustið 1983. 

Safnið er opið tvisvar í viku. Skólasafnið á skólatíma en almenningssafnið er opið milli kl. 14 og 19 á þriðjudögum og milli kl. 14 og 17 á fimmtudögum.