- Virðing
- Vinátta
- Vandvirkni
Heimanám
- Það er stefna skólans að setja nemendum daglega fyrir heimanám í formi lestrar og á það við um öll aldursstig skólans. Til viðbótar við heimalestur á yngsta stig að skrifa í orðabót, miðstig að skrifa í skriftarbók og elsta stig að gera stafsetningaræfingu.
- Auk lestrarins geta kennarar sett fyrir hóflega heimavinnu með það að markmiði að auka tengsl heimilis og skóla og gefa foreldrum innsýn í nám barna sinna.
- Ef nemendur sinna ekki nám í skóla eins og til er ætlast af þeim getur komið til þess að þeir þurfi að vinna það upp heima.
- Það er á ábyrgð foreldra að vinna upp nám sem nemendur missa af vegna tónlistar.
- Foreldrar/forsjáraðilar eru minntir á að þeir bera ábyrgð á námi barna sinna, sbr. 15. gr. laga um grunnskóla nr. 91/2008.