Ekki verður lagt af stað ef vindhviður fara yfir 25m/sek, við bestu aðstæður.
Í sunnanátt má taka mið af vindi í Seley og Papey, hámark 20m/sek.
Ekki verður ekið ef appelsínugul eða rauð viðvörun er í gildi á akstursleiðinni vegna veðurs eða náttúruvár, svo sem hvassviðris, hálku, mikillar úrkomu, snjóflóðahættu eða skriðuhættu.
Ef fjólublár litur er á vegi á heimasíðu Vegagerðarinnar, verður ekki lagt af stað.
Ef veðurútlit er slæmt á þeirri stundu sem skólahaldi ætti að ljúka (í lok skóladags), skal fara fyrr heim ef hægt er.
Að öðru leyti er þetta í höndum bílstjóranna sjálfra og skólastjóra