Vegna hálku, fellur skólakstur milli Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla niður föstudaginn 21. nóvember.
Skólahald verður eftir sem áður í heimaskólum nemenda og lýkur því kl. 12:50. Leikskóli verður starfræktur eins og venjulega.
Nauðsynlegt er að foreldrar og aðrir forráðamenn nemenda fylgist með veðurspá og meti sjálfir aðstæður og sendi þá ekki í skólann ef tvísýnt er um öryggi vegna veðurs.
Hér er að finna viðmið um skólakstur.
Þegar ekki er fært milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar, verður kennt á báðum stöðum og kennt eftir óveðursstundatöflu.