Óveður 22. mars

Vegna slæmrar veðurspár, fellur allur skólakstur í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla niður miðvikudaginn 22. mars. Skólahald verður eftir sem áður í heimaskólum nemenda og lýkur því kl. 12:15. Frístund og leikskóli verða starfrækt eins og venjulega.

Nauðsynlegt er að foreldrar og aðrir forráðamenn nemenda fylgist með veðurspá og meti sjálfir aðstæður og sendi þá ekki í skólann ef tvísýnt er um öryggi vegna veðurs.

Hér er að finna viðmið um skólakstur.

Þegar ekki er fært milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar, verður kennt á báðum stöðum og kennt eftir óveðursstundatöflu.