Viðbrögð við slæmri veðurspá.
Skólar í Fjarðabyggð eru opnir í dag 2. mars en þeim verður lokað í hádeginu samkvæmt nánari ákvörðun hvers skóla.
Allur skólaakstur í Fjarðabyggð fellur niður mánudaginn 2. mars, vegna veðurspár.
Það er lagt í hendur foreldra og forráðamanna að meta hvort börn eru send í skóla í dag.
• Skólinn tekur alltaf tillit til veðurs við skráningu mætingar.
• Ef foreldrar/forráðamenn meta aðstæður þannig að ekki sé óhætt að barn sæki skóla vegna veðurs, er mikilvægt að tilkynna skóla það.
Gert er ráð fyrir að veður versni verulega um hádegisbilið og appelsínugulviðvörun taki gildi klukkan 13:00. Við óskum því eftir að börnin verði sótt fyrir kl. 12:00 í leikskólann og ekki seinna en 12:50 í grunnskólann.
• Ef veðrið verður slæmt eru þegar nemendur fara heim, er það gert í samráði við foreldra/forráðamenn og nemendum aðeins hleypt út í fylgd fullorðinna.
Mælst er til þess að fólks sé ekki á ferðinni milli staða í dag að óþörfu.
|
Breiðdalsvík / Stöðvarfjörður Selnesi 25 / Skólabraut 20 Sími: grunnsk. 470 5570/475 9030 Sími: leikskóli 470 5566/475 9050 Netfang: sto@skolar.fjardabyggd.is |
Umsókn um leyfi og veikindatilkynning fer í gegnum Mentor: 470 5570/475 9030 / sto@skolar.fjardabyggd.is