Skólastarf að hefjast – helstu upplýsingar fyrir upphaf skólaárs

Skólastarf að hefjast – helstu upplýsingar fyrir upphaf skólaárs

Nú styttist í að skólastarf hefjist að nýju og hlökkum við til að taka á móti nemendum í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla. Hér má finna helstu upplýsingar varðandi skólsetningu, kennslu, skólaakstur, sundkennslu, frístund og tekjutengdan afslátt.

Skólsetning 24. ágúst

Skólsetning verður mánudaginn 24. ágúst kl. 10:00 í húsnæði grunnskólans á Stöðvarfirði.

Rúta leggur af stað frá Breiðdalsvík kl. 09:30 og ekur nemendum á skólsetningu. Sveitarútan ekur alla leið yfir á Stöðvarfjörð.

Umsjónarkennarar munu bjóða upp á viðtalstíma í tengslum við upphaf skólaársins og senda foreldrum og forráðamönnum nánari upplýsingar um fyrirkomulagið.

Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst á Stöðvarfirði .

Kennsla fyrst um sinn á Stöðvarfirði

Þar sem framkvæmdum við skólahúsnæðið á Breiðdalsvík er ekki lokið mun kennsla fara fram á Stöðvarfirði fyrstu vikur skólaársins.

Sundkennsla fer því einnig fram á Stöðvarfirði. Í ágúst og út september verður sundkennsla í öllum íþróttatímum og þurfa nemendur því ekki að koma með íþróttaföt í þessa tíma.

Nemendur þurfa að hafa með sér sundföt og handklæði. Þeir sem nota sundgleraugu eru einnig beðnir um að koma með sín eigin.

Sundtímar skiptast þannig eftir stigum:

  • Yngsta stig: mánudagar og föstudagar

  • Miðstig: þriðjudagar og föstudagar

  • Elsta stig: mánudagar og föstudagar

Frístund fyrir nemendur í 1.–4. bekk

Nemendum í 1.–4. bekk stendur til boða að vera í frístund að lokinni kennslu, frá kl. 13:30–16:00 alla virka daga. Miðað er við að frístund sé í boði alla nemendadaga samkvæmt skóladagatali, þar með talið foreldra- og samtalsdaga. Þjónustan er þó háð því að takist að ráða starfsfólk.

Sótt er um frístund með því að senda tölvupóst til skólastjóra.

Vert er að taka fram að nemendur sem þurfa að bíða eftir skólarútu að lokinni kennslu greiða ekki fyrir þann tíma sem þeir dvelja í frístund á meðan þeir bíða eftir rútunni.

Gjaldskrá frístundarheimila Fjarðabyggðar má nálgast hér.

Tekjutengdur afsláttur af leikskóla- og frístundagjöldum

Þeir sem hafa verið með tekjutengdan afslátt af leikskóla- og/eða frístundagjöldum þurfa að endurnýja umsókn sína í síðasta lagi mánudaginn 24. ágúst.

Tekjuviðmið fyrir 50% afslátt eru:

  • Einstaklingar með árstekjur undir 9.000.000 kr. – 50% afsláttur.

  • Sambúðarfólk með samanlagðar árstekjur undir 13.600.000 kr. – 50% afsláttur.

Afslátturinn gildir ekki um fæðisgjöld.

Sækja þarf um afsláttinn árlega og er umsóknarfrestur til og með 24. ágúst. Sótt er um afsláttinn í Íbúagáttinni.

Skóladagatal skólaársins 2026–2027 er aðgengilegt á vef skólans.

Ef þið hafið einhverjar spurningar eða eitthvað er óljóst, ekki hika við að hafa samband.

Við hlökkum til að taka á móti nemendum og hefja nýtt skólaár.