Skólasetning

Skólasetning verður mánudaginn 23. ágúst kl. 10.00 á Breiðdalsvík. Skólarútan mun fara frá Stöðvarfirði kl. 9.30 og til baka kl. 11.00.
Hlíðar mun hefja skólaakstur á Gilsárstekk rétt fyrir kl. 9.30 þennan dag, næstu stopp hjá honum verða Heydalir, Staðarborg, Fell og Gljúfraborg.
Skólahald hefst svo samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 24. ágúst.

Foreldrar eru velkomnir á skólasetninguna en vegna sóttvarna viljum við biðja foreldra um að bera grímu og huga að fjarlægðartakmörkunum.