Skólahald 19.09.2023

Vegna slæmrar veðurspár og hættu á aurskriðum í skriðunum fellur skólakstur milli Breiðdalvík og Stöðvarfjarðar niður þriðjudaginn 19. september. Skólahald verður eftir sem áður í heimaskólum nemenda og kennt eftir óveðurstundatöflu og lýkur því kl. 12:15.

Frístund og leikskóli verða starfrækt eins og venjulega.

Nauðsynlegt er að foreldrar og aðrir forráðamenn nemenda fylgist með veðurspá og meti sjálfir aðstæður og sendi þá ekki í skólann ef tvísýnt er um öryggi vegna veðurs.