Samskiptadagur fimmtudaginn 1. október

Samskiptadagur fimmtudaginn 1. október

Á samskiptadegi mæta nemendur með foreldrum sínum í nemendastýrt viðtal hjá umsjónarkennara. Umsjónarkennarar hafa samband um viðtalstíma. Aðrir kennarar verða einnig með opna hurð fyrir foreldra sem vilja spjalla. Engin kennsla er samkvæmt stundaskrá og nemendur fara heim að viðtali loknu.

Frístund fyrir 1.–4. bekk er opin kl. 8:00–16:00. Skrá þarf með tölvupósti til skólastjóra fyrir kl. 16:00 miðvikudaginn 30. september. Vistun er gjaldfærð samkvæmt gjaldskrá Fjarðabyggðar.

Nemendur í 9.–10. bekk fá viðtalstíma að morgni og geta beðið í skólanum eftir rútu í VA-val, sem fer rétt fyrir kl. 11:00.

Skólarútan er aðeins fyrir nemendur í 1.–4. bekk sem eru skráðir í frístund. Hún fer frá Breiðdalsvík kl. 8:00 og til baka frá Stöðvarfirði kl. 15:30. Sveitarútan ekur ekki; foreldrar úr sveitinni þurfa að koma börnum sínum til Breiðdalsvíkur ef þau nýta frístundina.