Líflegt skólastarf og viðburðir framundan

Nemendur skólans létu til sín taka á ýmsum vettvangi á dögunum og stóðu sig með prýði.

Áki tók þátt í Skólaskák Austurlands um helgina þar sem hann stóð sig vel og sýndi góða færni og einbeitingu við taflborðið.

Í síðustu viku tók Viktoría þátt í Stóru upplestrarkeppninni og stóð sig afar vel. Högni var henni til stuðnings sem varamaður og stóð sig einnig með sóma.

Einnig viljum við þakka Maríu fyrir áhugaverð og fræðandi verkefni sem nemendur tóku þátt í á Breiðdalssetri og í Borkjarnasafninu í síðustu viku.

Framundan eru nokkrir mikilvægir viðburðir:

  • Netvís fræðsla fyrir foreldra fer fram í dag kl. 17:00.
  • Fundur skólaráðs verður á þriðjudaginn kl. 16:30.
  • Fundur foreldraráðs verður á miðvikudaginn kl. 16:00 og svo fundur með samfélaginu kl 17:00
  • Skólamyndataka fer fram 4. maí.
  • Íþróttadagur Fjarðabyggðar verður haldinn 13. maí fyrir nemendur í 7.–10. bekk.

Við hvetjum alla til að taka þátt og fylgjast vel með.

Við erum stolt af okkar nemendum og þeirra framlagi