Farsældardagar í Fjarðabyggð 5.-12. febrúar

Starfsfólk heimilis og skóla heimsækir Fjarðabyggð 10. - 12. febrúar

  • Heldur vinnustofur með foreldrum í öllum skólum með það að markmiði að vinna farsældarsáttmála í öllum bekkjum. -Farsældarsáttmáli er verkfæri sem foreldrar og aðrir geta notað til þess að koma sér saman um gildi og viðmið fyrir börnin sín til að stuðla að þroska og farsæld allra barna.    Vinnustofa hefst á sal og síðan fara foreldrar hvers bekkjar í viðeigandi stofu og vinna saman, vinnan tekur allt að 1,5 klukkustund.  Nauðsynlegt að einhverjir starfsmenn séu viðstaddir en það er ákvörðun í hverjum skóla.
  • Fundir með starfsfólki í öllum grunnskólum um farsældarvinnuna, ásamt starfmanni frá fjölskyldusviði (málstjóra) og tengiliðum í viðkomandi skóla.

Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli á Breiðdalsvík

15:00 Fundur með starfsfólki skóla um farsældarvinnuna.

19:30  vinnustofa foreldra um farsældarsáttmála.