Skólahald eftir páska

Engin börn eftir hádegi í dag á Stf. og notuðu Viktor og Sandra tímann til að endurflokka bækur.
Engin börn eftir hádegi í dag á Stf. og notuðu Viktor og Sandra tímann til að endurflokka bækur.

Eftir páskafrí hefst skólastarf að nýju, með ákveðnum takmörkunum.  Starfsemi leikskólans hefst á þriðjudegi og grunnskólans á miðvikudegi kl. 8.00 skv. stundaskrá (starfsdagur er í grunnskólanum á þriðjudegi).

Leikskólar

  • Engin fjölda- eða nálægðartakmörkun gildir um börn á leikskólaaldri
  • Hámarksfjöldi fullorðinna er 20 manns í rými, en starfsmenn mega fara milli rýma
  • Starfsfólk skal virða 2 metra fjarlægðarreglu sín á milli en nota grímu ella
  • Viðburðir eru heimilir í skólastarfinu með þátttöku nemenda og starfsfólks en engum utanaðkomandi
  • Foreldrar og aðstandendur skulu ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til og skulu þá nota andlitsgrímu
  • Takmörkun á komu aðstandenda vegna aðlögunar

Grunnskólar

  • Nemendur eru undanþegnir nálægðartakmörkun og grímuskyldu
  • Hámarksfjöldi starfsmanna er 20 manns í rými og þeir mega fara milli rýma
  • Starfsfólk skal virða 2 metra fjarlægðarreglu sín á milli og gagnvart nemendum en nota grímu ella
  • Viðburðir eru heimilir í skólastarfinu með þátttöku nemenda og starfsfólks en engum utanaðkomandi
  • Hámarksfjöldi nemenda í rými er 50 og blöndun milli hópa innan sama skóla er heimil
  • Íþrótta- og sundkennsla er heimil
  • Sjálfsafgreiðsla í mötuneyti er óheimil