Í næstu viku er fyrirhugað að fara í skíðaferð í Oddskarð. Við horfum til mánudagsinn 16. febrúar (en gætum þurft að hnika til ef veðurspá er okkur ekki hliðholl).
Skólinn greiðir fyrir rútu og lyftugjald. Nemendur greiða fyrir skíðabúnað og sjá um nestið. Sjoppa er á staðnum svo þeir sem ætla að versla þar þurfa þá að koma með pening.
Skíða/brettaleiga er á staðnum og kostar 1.000 krónur að leigja (verulegur afsláttur miðað við fullt verð).
Við vitum ekki annað en að sérstök brekka sé fyrir sleða/þotur (þá þurfa menn að koma með eigin búnað eins og þotu/sleða eða rassaþotu).
Tvennt ber að hafa í huga:
a) Bretti eru alls ekki fyrir byrjendur, en heimilin ráða þessu fyrir 10 ára og eldri.
b) Ef nemendur í 1.-2. bekk ætla á skíði er gerð krafa um að foreldrar komi með.
c) Allir verða að koma í góðum útifatnaði og æskilegt er að vera með buff til að vera með undir hjálminum.
Þeir foreldrar sem hafa áhuga á að koma með okkur, endilega látið mig vita svo ég geti gert ráð fyrir ykkur í rútuna. Því fleiri því betra :)
Reiknað er með að lagt verði af stað kl.08:00 frá Breiðdalsvík og frá Oddskarði ekki síðar en kl. 14.00 (kannski kl. 13.00, ef allir verða orðnir þreyttir).
Sjá nánar https://www.visitfjardabyggd.is/oddsskard
|
Breiðdalsvík / Stöðvarfjörður Selnesi 25 / Skólabraut 20 Sími: grunnsk. 470 5570/475 9030 Sími: leikskóli 470 5566/475 9050 Netfang: sto@skolar.fjardabyggd.is |
Umsókn um leyfi og veikindatilkynning fer í gegnum Mentor: 470 5570/475 9030 / sto@skolar.fjardabyggd.is