Námsáætlun í íslensku fyrir 1. bekk

 Námsáætlun

 

Bekkur: 1. bekkur

Námsgrein: Íslenska

Kennari: Sigrún Birgisdóttir

Tímafjöldi: 10 stundir á viku

 

Námsgögn: Lestrarlandið, Listin að lesa og skrifa og ýmsar aðrar léttlestrarbækur, efni af skólavefnum, 123skóli og fleira efni.

 

Lykilhæfni: Námsgreinin kemur inn á eftirfarandi þætti samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla: 

 · Talað mál, hlustun og áhorf

 · Lestur og lesskilningur

 · Bókmenntir

 · Ritun

 · Mál og málnotkun

 

Grunnþættir: Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla eru grunnþættir menntunar sex: Læsi – Sjálfbærni – Lýðræði og mannréttindi – Jafnrétti – Heilbrigði og velferð – Sköpun. Í námsgreininni er unnið með alla þessa þætti þó mismikið sé eftir árgöngum.

 

 

 

Námsþættir  

Hæfniviðmið

Kennsluhættir

Námsmat

Talað mál, hlustun

og áhorf

  • Beitt skýrum og áheyrilegum framburði.
  • Sagt frá atburði eða fyrirbæri, tjáð sig frammi fyrir hópi og staðið fyrir máli sínu.
  • Hlustað og horft af athygli á valið efni og greint frá upplifun sinni.
  • Nýtt sér og endursagt efni á stafrænu formi.

Notast er við fjölbreytta kennsluhætti þar sem reynir á sjálfstæði nemenda, einstaklings - og samvinnu.  Reynt er að höfða til hvers og eins.

Munnleg og skrifleg verkefni.

Próf, kannanir og skimanir af ýmsu tagi.

Þátttaka í samræðum, virkni og tjáning.

Einstaklings- og hópverkefni.

Sjálfsmat.

Lestur

og lesskilningur

  • Beitt aðferðum við umskráningu hljóða og stafa svo lestur flæði vel og merking texta komist til skila.
  • Þekkt og beitt einföldum aðferðum við lestur og tilgreint dæmi um ólíkan tilgang lestrar.
  • Beitt góðum orðaforða við að skilja texta og notað einfaldar aðferðir til að ráða í merkingu ókunnra orða.
  • Skilið augljós efnisatriði valinna texta, greint og lagt mat á inntak þeirra og dregið einfaldar ályktanir.
  • Valið og lesið sér til ánægju fjölbreytt lesefni sem hæfir aldri.

Lestrarlandið notað með vinnubókum þess.

Listin að lesa og skrifa. Mest er notast við hljóðaaðferðina þ.e. hver stafur og hljóð hans er lagt inn.  Þannig er unnið með hljóðvitund og stuðlað að réttri stafsetningu.

Unnið með orða- og stafaspil

Munnleg, verkleg, skrifleg og myndræn verkefni.

Próf, kannanir og skimanir af ýmsu tagi.

Vinnubækur og verkefnabækur.

Einstaklings- og hópverkefni.

Bókmenntir

  • Unnið með ævintýri, sögur og ljóð ætluð börnum.
  • Beitt einföldum bókmenntahugtökum í umfjöllun um bókmenntir.
  • Lesið einfalda texta frá fyrri tímum og sett sig í spor persóna og lesenda í fortíðinni.
  • áttað sig á grunneinkennum ljóða og unnið með innihald þeirra.

 

 

Ritun

  • Dregið rétt til stafs, skrifað skýrt og læsilega og á lyklaborð.
  • Búið til setningar og málsgreinar og notað til þess algengar samtengingar.
  • Skrifað ólíkar textategundir og skilur að hverjum texta er ætlað ákveðið hlutverk.
  • Sett fram eigin hugmynd í texta, metið og lagfært með eða án hjálpargagna.
  • Beitt einföldum stafsetningarreglum og einföldum reglum við greinarmerkjasetningu.

Kennd er Ítalíuskrift.

Skriftarbók og stafdráttur.

Mál og málnotkun

  • Þekkt og rætt ýmis einkenni málsins.
  • Beitt töluðu máli og rituðu af nokkru öryggi og með orðaforða og málskilningi sem hæfir aldri.
  • Áttað sig á sköpunarmætti tungumálsins svo sem með því að ríma og fara í orðaleiki.
  • Áttað sig á mismunandi hlutverki nafnorða, lýsingarorða og sagnorða.
  • Leikið sér með margræðni tungumálsins svo sem í gegnum orðtök, einfalda málshætti og föst orðasambönd.
  • Raðað í stafrófsröð og gert sér grein fyrir notagildi þess við leit og skipulag.

Skrifleg, verkleg og munnleg verkefni.

Umsögn byggð á frammistöðu í vetur.  Byggð á lausnum nemenda og fl.