Bekkur: 5. - 7. bekkur
Námsgrein: Heimilisfræði
Kennari: Auður Hermannsdóttir
Tímafjöldi: 80 mínútur á viku, eftir áramót.
Námsgögn: Ýmis verkefni og uppskriftir frá kennara.
Lykilhæfni: Námsgreinin kemur inn á eftirfarandi þætti samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla:
Tjáning og miðlun
Skapandi og gagnrýnin hugsun
Sjálfstæði og samvinnu
Nýting miðla og upplýsinga
Ábyrgð og mat á eigin námi.
Grunnþættir: Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla eru grunnþættir menntunar sex: Læsi – Sjálfbærni – Lýðræði og mannréttindi – Jafnrétti – Heilbrigði og velferð – Sköpun. Í námsgreininni er unnið með alla þessa þætti þó mismikið sé eftir árgöngum.
|
Námsþættir
|
Hæfniviðmið
|
Kennsluhættir
|
Námsmat
|
|
Verklag
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi:
- matreitt einfaldar og hollar máltíðir út frá ráðleggingum um mataræði frá embætti landlæknis,
- unnið sjálfstætt eftir uppskriftum og notað til þess algengustu mæli- og eldhúsáhöld og skilið gildi viðeigandi frágangs,
- greint frá helstu orsökum slysa við eldhússtörf og hvernig má koma í veg fyrir þau.
|
Kennsluhættir í heimilisfræði eru að mestu í formi sýnikennslu og verklegra æfinga. Nemendur læra að vinna bæði sjálfstætt og í hóp. Unnin eru bókleg verkefni samhliða verklegri kennslu auk sífelldrar umræðu um hugtök og heiti sem tengjast viðfangsefninu hverju sinni.
|
Námsmat er símat þar sem ástundun nemenda er skráð eftir hverja kennslustund. Þar er farið eftir því hversu vel nemendur fylgja fyrirmælum, vinna með öðrum, sýni sjálfstæði í vinnubrögðum og taki virkan þátt í kennslustundum.
Áherslan er á að meta ferlið en ekki eingöngu afurðina.
Leiðsagnarmat er viðhaft yfir árið þar sem nemendur fá munnlega leiðsögn um stöðu sína. Hvað sé gott og hvað sé hægt að bæta.
|
|
Lífshættir
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi:
- tjáð sig um heilbrigða lífshætti eins og næringu, hreyfingu og svefn,
- skilið og tjáð sig á einfaldan hátt um aðalatriði ráðlegginga um mataræði frá embætti landlæknis,
- öðlist færni í hreinlæti og þrifum tengdu matreiðslu,
- gert sér grein fyrir helstu kostnaðarliðum við heimilishald.
|
|
Umhverfi
|
Við lok 7. bekkjar getur nemandi:
- sett viðfangsefni heimilisfræðinnar í einfalt samhengi við jafnrétti og sjálfbærni og áttað sig á uppruna helstu matvæla,
- skilið mismunandi umbúðamerkingar og þekki helstu geymsluaðferðir,
- tjáð sig um þjóðlegar íslenskar hefðir í matargerð,
- áttað sig á gildi þess að neyta matvæla með sem minnst kolefnisspor.
|