Námsáætlun í ensku fyrir 7. bekk

 

7. bekkur

Námsgrein:  Enska

Kennari:  Björgvin Valur Guðmundsson

Tímafjöldi:  80 mínútur á viku 

Námsgögn: Yes We Can 7.  Efni af vef og efni búið til af kennara.

 

Lykilhæfni: Námsgreinin kemur inn á eftirfarandi þætti samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla: 

 

Grunnþættir: Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla eru grunnþættir menntunar sex: Læsi – Sjálfbærni – Lýðræði og mannréttindi – Jafnrétti – Heilbrigði og velferð – Sköpun. Í námsgreininni er unnið með alla þessa þætti þó mismikið sé eftir árgöngum.

 

Námsþættir  

Hæfniviðmið

Kennsluhættir

Námsmat

Hlustun og áhorf

Skilið algeng orð, einföld fyrirmæli og frásagnir og brugðist við þeim.

Fylgt meginþræði í einföldu efni sem höfðar til barna og unglinga.

Hlustað eftir einföldum upplýsingum og nýtt sér í námi sínu.

Horft á efni, hlustað eða lesið og umræður um það á eftir.  Kennari kemur með umræðuefni í tíma og nemendur tjá sig um það.

Námsmat fer fram með símati og eru skilaverkefni nemenda metin jafnóðum.  Í lok annar er svo framkvæmt lokamat og hæfni nemenda metin út frá þessu tvennu.

Lestur og lesskilningur

Fundið afmarkaðar upplýsingar í einföldum texta og nýtt sér í verkefnavinnu.

Skilið megininntak einfaldra rauntexta með stuðningi ef þarf.

Lesið stuttar sögur og bækur á einföldu máli sér til ánægju.

Lesið stutt og auðlesið efni tengt öðrum námsgreinum.

Lesið og skilið stutta texta með grunnorðaforða daglegs lífs.

Horft á efni, hlustað eða lesið og verkefni unnin upp úr því.

 

Samskipti

Spurt og svarað á einfaldan hátt um það sem stendur honum næst.

Tekist á við aðstæður í skólastofunni í einföldum samskiptum.

Tekið þátt í einföldum samræðum í skólastofunni.

 

 

Frásögn

Tjáð sig á einfaldan hátt um sjálfan sig og líf sitt.

Undirbúið og flutt einfalda frásögn eða kynningu um efni sem hann þekkir vel.

Flutt einfalt atriði sem hann hefur haft tækifæri til að æfa.

Tjáð sig nokkuð skiljanlega hvað varðar framburð og áherslur.

Nemandi undirbýr og flytur frásögn eða kynningu.

 

Ritun

Skrifað einfaldan texta með orðaforða úr efnisflokkum sem fengist er við.

Byggt upp einfaldar setningar, stafsett algeng orð og notað algeng greinarmerki.

Skrifað einfalda texta um efni sem tengist námi hans.

Skrifað á einföldu máli um efni sem hann þekkir vel.

Samið stutta texta frá eigin brjósti.

Nemandi skrifar ritgerð eða frásögn frá eigin brjósti.