Kennsluáætlun - íþróttir 6. bekkur

 

Námsáætlun Skólaíþróttir – 6. bekkur           

Skólaárið 2023-2024

Kennari: Steinþór Snær Þrastarson

 

Tímafjöldi: 120 mín. á viku

 

Lykilhæfni: Námsgreinin kemur inn á eftirfarandi þætti samkvæmt aðalnámskrá

grunnskóla:

● Tjáning og miðlun

● Skapandi og gagnrýnin hugsun

● Sjálfstæði og samvinnu

● Nýting miðla og upplýsinga

● Ábyrgð og mat á eigin námi.

Grunnþættir: Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla eru grunnþættir menntunar sex:

Læsi – Sjálfbærni – Lýðræði og mannréttindi – Jafnrétti – Heilbrigði og velferð –

Sköpun. Í námsgreininni er unnið með alla þessa þætti þó mismikið sé eftir

árgöngum.

● Tekur ábyrgð á eigin námi.

● Virðir vinnufrið annarra.

● Vinnur með öðrum og sýnir jákvæðni í samskiptum.

● Leitar upplýsinga, les sér til gagns og vinnur sjálfstætt.

● Vinnur vel og fer eftir fyrirmælum.

● Sýnir vönduð vinnubrögð við verkefnaskil.

● Fer eftir þeim fyrirmælum sem lagt er upp með og skilar verkefnum á réttum

tíma.

Námsþættir

Hæfniviðmið

Íþróttir

 

Líkamsvitund, leikni og afkastageta

Að nemendur geti

    • æfingar sem reyna á loftháð þol
    • sýnt leikni í mismunandi íþróttagreinum

 

Félagslegir þættir

Að nemendur geti:

    • sýnt virðingu og góða framkomu hvort sem leikur tapast eða vinnst
    • viðhaft jákvæð og árangursrík samskipti til að efla liðsanda
    • tileinkað  sér íþróttamannslega hegðun

 

 Heilsa og efling þekkingar

Að nemendur geti:

 

    • æfingar fyrir heilbrigðu líferni
    • gert sér grein fyrir starfssemi líkamans

 

Öryggis og samskiptareglur

Nemendur geti:

    • farið eftir öryggis-, skipulags og umgengisreglum sundstaða og íþróttahúsa við óhöppum

 

Sund

 

Líkamsvitund, leikni og afkastageta

Unnið eftir 6. sundstigi:

Að nemendur geti:

    • synt 200 m bringusund, viðstöðulaust
    • synt 50 m skólabaksund
    • synt 25 m skriðsund
    • synt 25 m baksund
    • synt 25 m bringusund á tíma, lágmark 35.0 sek
    • synt 15 m björgunarsund (skólabaksundsfótatök)
    • synt 8 m kafsund

 

Öryggis og skipulagsreglur

Að nemendur geti:

    • farið eftir öryggis-, skipulags og umgengisreglum sundstaða og íþróttahúsa við óhöppum

 

Námsgögn:

Öll almenn áhöld íþróttahúsa

Öll almenn áhöld sundlauga

 

 Námsmat: Símat yfir alla önnina.

● Próf í þoli (loftháð og loftfirrt) (“The Beep test).

● Próf í styrk, samhæfingu og snerpu (Armbeygjur,langstökk án atrennu og

sipp).

● Námsmat í sundi er samkvæmt sundstigunum með tímatökum,

stílsundsprófum og öðrum þáttum.

● Mikil áhersla er lögð á hegðun, virkni, jákvæðni, samskipti, framfarir og

mætingu. Námsmat nemenda byggir á prófum, verkefnavinnu og símati

kennara út frá hæfniviðmiðum.

● Einkunnir verða gefnar út að vori samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla á

kvarðanum D, C, C+, B, B+ og A

Áskilinn er réttur til breytinga á áætlun og námsmati.