Kennsluáætlun í myndmennt fyrir 9. og 10. bekk

Kennsluáætlun í Myndmennt skólaárið 2023-2024 

Bekkur: 8.-10. bekkur 

Námsgrein: Myndmennt 

Kennarar: Ingibjörg Ómarsdóttir 

Tímafjöldi: 2 kennslustundir á viku 

Námsgögn: Efni frá kennara 

Lykilhæfni: Námsgreinin kemur inn á eftirfarandi þætti samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla:  

 · Tjáning og miðlun 

 · Skapandi og gagnrýnin hugsun  

 · Sjálfstæði og samvinnu 

 · Nýting miðla og upplýsinga  

 · Ábyrgð og mat á eigin námi. 

 

Grunnþættir: Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla eru grunnþættir menntunar sex: Læsi – Sjálfbærni – Lýðræði og mannréttindi – Jafnrétti – Heilbrigði og velferð – Sköpun. Í námsgreininni er unnið með alla þessa þætti þó mismikið sé eftir árgöngum. 

 

Önnur hæfniviðmið sem lúta að almennri framkomu og vinnulagi í tímum og metin eru yfir allt árið: 

● Tekur ábyrgð á eigin námi. 

● Virðir vinnufrið annarra. 

● Vinnur með öðrum og sýnir jákvæðni í samskiptum. 

● Leitar upplýsinga, les sér til gagns og vinnur sjálfstætt. 

● Vinnur vel og fer eftir fyrirmælum. 

● Sýnir vönduð vinnubrögð við verkefnaskil. 

● Fer eftir þeim fyrirmælum sem lagt er upp með og skilar verkefnum á réttum 

tíma 

 

 
 
 
 
 
 
 

Námsþættir   

 
 
 
 
 

Námsmarkmið 

 
 
 
 
 

Sjónlistir 

 
 
 
 
  • Valið á milli mismunandi aðferða við sköpun, prófað sig áfram og unnið hugmyndir í fjölbreytta miðla. 

  • Greint og beitt fjölbreyttum aðferðum og tækni. 

  • Tjáð skoðanir eða tilfinningar í eigin sköpun með tengingu við eigin reynslu og gagnrýni á samfélagið. 

  • Sýnt og útskýrt vinnuferla frá hugmynd að lokaverkefni sem felur m.a. í sér upplýsingaöflun, tilraunir og samtal. 

  • Skrásett og sett fram hugmyndir á fjölbreyttan hátt byggðar á eigin ímyndunarafli og/eða rannsókn, myndrænt og/eða texta. 

  • Notað orðaforða og hugtök til að tjá skoðanir sínar á myndlist og hönnun og fært rök fyrir þeim út frá eigin gildismati. 

  • Gagnrýnt af þekkingu, sanngirni og virðingu eigin verk og annarra bæði einn og í samvinnu. 

  • Greint, borið saman og lýst ýmsum stílum og stefnum í myndlist og hönnun, bæði á Íslandi og erlendis og tengt það við þá menningu sem hann er sprottinn úr. 

  • Greint hvernig samtímalist fæst við álitamálefni daglegs lífs með fjölbreyttum nálgunum sem oft fela í sér samþættingu listgreina. 

 

 

 

Kennsluhættir og námsmat:  

 

Kennsluhættir mótast af getu nemenda og námsmat er byggt upp af símati þar sem horft er á framfarir nemenda, hvernig nemendur beita sér í tíma og vinnusemi. 

Í myndmennt er unnið með verkleg og skapandi verkefni sem reyna á hagnýta og fagurfræðilega lausnaleit. Í list- og verkgreinum eru áherslur eru lagðar á fjóra megin þætti sem fléttast saman. 

 

Þekkingaröflun og hugmyndavinna 

Snýr að undirbúningsvinnu og tækniþjálfun. Nemendur viða að sér upplýsingum og efni, kanna, rannsaka, prófa, ímynda sér, læra tækni, forma, taka áhættu sem skerpir eigið þor og traust bæði til viðfangsefnisins og eigin hugmynda.  

 

Framkvæmd 

Felur í sér að nemendur beita aðferðum þar sem þeir umbreyta, túlka, flytja, sýna, prófa, forma og framleiða. 

 

Greining 

Felur í sér að nemendur dýpka skilning sinn og upplifun með umræðu, tjáningu og mati. Nemendur greina, yrða, meta, virða, gagnrýna, bera saman, túlka, ígrunda og rannsaka 

 

Samhengi 

Felur í sér að setja ferlið í sögulegt, menningarlegt, persónulegt og félagslegt samhengi. Nemendur yrða, meta, ígrunda, skipuleggja/endurskipuleggja, smíða kenningar, þroskast og breytast. 

 

Áskilinn er réttur til breytinga á áætlun og námsmati.