Kennsluáætlun
Bekkur: 1. - 4.. bekkur
Námsgrein: Hönnun og smíði
Kennari: Björgvin Valur Guðmundsson
Tímafjöldi: 60 mín. á viku
Námsgögn: Öll almenn áhöld smíðastofunnar.
Lykilhæfni: Námsgreinin kemur inn á eftirfarandi þætti samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla:
-
Tjáning og miðlun
-
Skapandi og gagnrýnin hugsun
-
Sjálfstæði og samvinnu
-
Nýting miðla og upplýsinga
-
Ábyrgð og mat á eigin námi.
Grunnþættir: Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla eru grunnþættir menntunar sex: Læsi – Sjálfbærni – Lýðræði og mannréttindi – Jafnrétti – Heilbrigði og velferð – Sköpun. Í námsgreininni er unnið með alla þessa þætti þó mismikið sé eftir árgöngum.
-
Að nemendur læri að beita verkfærum á réttan hátt
-
Að nemendur kynnist hönnunar-/rannsóknarferli hönnuða og listamanna og geti unnið eftir vinnuferli frá hugmynd til lokaafurðar
-
Að nemendur geti skráð hugmyndavinnu og verkferli í skissubók
-
Að nemendur geti unnið sjálfstætt og sýni frumkvæði
-
Að nemendur læri tungutak hönnunar og smíði
-
Að nemendur læri góða umgengni á verkstæði
Námsgögn: Öll almenn áhöld íþróttahússins og sundlaugarinnar.
-
Námsmat: Símat yfir alla önnina.
-
Einkunnir verða gefnar út að vori samkvæmt Aðalnámskrá grunnskóla á kvarðanum D, C, C+, B, B+ og A
Áskilinn er réttur til breytinga á áætlun og námsmati.
|
Námsþættir
|
Hæfniviðmið
|
|
Handverk
|
Nemandi geti valið og notað nokkur verkfæri sem hæfa viðfangsefni á öruggan hátt. Nemandi geti gert grein fyrir nokkrum smíðaefnum sem unnið er með.
|
|
Hönnun og tækni
|
Nemandi geti dregið einfalda skissu og tvívíða teikningu til að útskýra hugmyndir sínar.
Nemandi geti framkvæmt einfaldar samsetningar.
|
|
Umhverfi
|
Nemandi geti valið efni út frá umhverfissjónarmiðum og sagt frá kostum þess að nota efni úr nærumhverfi.
Nemandi geti sýnt góða nýtingu þeirra efna sem unnið er með.
|