Kennsluáætlun
Bekkur: 1. - 4. bekkur
Námsgrein: Heimilisfræði
Kennari: Auður Hermannsdóttir
Tímafjöldi: 1 klst á viku í eina önn. (Hópnum er skipt í tvennt og skiptist skólaárið milli smíði og heimilisfræði)
Námsgögn: Heimilisfræði 2 og 3 eftir Jóhönnu Höskuldsdóttur og Ólöfu Jónsdóttur. Ýmis verkefni og uppskriftir frá kennara.
Lykilhæfni: Námsgreinin kemur inn á eftirfarandi þætti samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla:
× Tjáning og miðlun
× Skapandi og gagnrýnin hugsun
× Sjálfstæði og samvinnu
× Nýting miðla og upplýsinga
× Ábyrgð og mat á eigin námi.
Grunnþættir: Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla eru grunnþættir menntunar sex: Læsi – Sjálfbærni – Lýðræði og mannréttindi – Jafnrétti – Heilbrigði og velferð – Sköpun. Í námsgreininni er unnið með alla þessa þætti þó mismikið sé eftir árgöngum.
|
Námsþættir
|
Hæfniviðmið
|
Kennsluhættir
|
Námsmat
|
|
Matur og lífshættir
|
- Að nemendur læri að tjá sig á einfaldan hátt um heilbrigða lífshætti.
- Geti valið hollan mat og útskýrt áhrif hans á líkama og líðan.
- Geti farið eftir einföldum leiðbeiningum um hreinlæti og þrif.
|
Kennsluhættir í heimilisfræði eru að mestu í formi sýnikennslu og verklegra æfinga. Nemendur læra að vinna bæði sjálfstætt og í hóp. Unnin eru bókleg verkefni samhliða verklegri kennslu auk sífelldrar umræðu um hugtök og heiti sem tengjast viðfangsefninu hverju sinni.
|
Námsmat er símat þar sem ástundun nemenda er skráð eftir hverja kennslustund. Þar er farið eftir því hversu vel nemendur fylgja fyrirmælum, vinna með öðrum, sýni sjálfstæði í vinnubrögðum og taki virkan þátt í kennslustundum.
Áherslan er á að meta ferlið en ekki eingöngu afurðina.
Leiðsagnarmat er viðhaft yfir árið þar sem nemendur fá munnlega leiðsögn um stöðu sína. Hvað sé gott og hvað sé hægt að bæta.
|
|
Matur og vinnubrögð
|
- Að nemendur geti útbúið með aðstoð einfaldar og hollar máltíðir.
- Geti farið eftir einföldum uppskriftum og notað til þess einföld mæli- og eldhúsáhöld.
- Geti sagt frá helstu hættum sem fylgja vinnu í eldhúsi.
|
|
Matur og umhverfi
|
- Að nemendur geti sett viðfangsefni heimilisfræðinnar í einfalt samhengi við sjálfbærni.
- Geti skilið einfaldar umbúðamerkingar.
|
|
Matur og menning
|
Nemendur geti tjáð sig á einfaldan hátt um jákvæð samskipti við borðhald, helstu hátíðir íslendinga, siði sem þeim fylgja og þjóðlegan mat.
|