Kennsluáætlun í myndmennt, 1. - 4. bekkur

Kennsluáætlun

 

Bekkur: 1. – 4. bekkur

Námsgrein: Myndmennt

Kennari: Auður Hermannsdóttir       

Tímafjöldi: 1 klst á viku.

 

Námsgögn: Ýmis verkefni frá kennara.

 

Lykilhæfni: Námsgreinin kemur inn á eftirfarandi þætti samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla:

×        Tjáning og miðlun.  

×        Skapandi og gagnrýnin hugsun. 

×        Sjálfstæði og samvinna.

×        Nýting miðla og upplýsinga. 

×        Ábyrgð og mat á eigin námi.

 

Grunnþættir: Samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla eru grunnþættir menntunar sex: Læsi – Sjálfbærni – Lýðræði og mannréttindi – Jafnrétti – Heilbrigði og velferð – Sköpun.
Í námsgreininni er unnið með alla þessa þætti þó mismikið sé eftir árgöngum. 

 

Námsmat er símat þar sem ástundun nemenda er skráð eftir hverja kennslustund. Þar er farið eftir því hversu vel nemendur fylgja fyrirmælum, vinna með öðrum, sýni sjálfstæði í vinnubrögðum og taki virkan þátt í kennslustundum.

Áherslan er á að meta ferlið en ekki eingöngu afurðina.

Leiðsagnarmat er viðhaft yfir árið þar sem nemendur fá munnlega leiðsögn um stöðu sína. Hvað sé gott og hvað sé hægt að bæta.

Námsþættir 

Hæfniviðmið

Kennsluhættir

Menningarlæsi

×        Að nemandinn geti unnið eftir einföldu ferli frá hugmynd til afurðar.

×        Hagnýtt þá leikni sem hann hefur öðlast í einföldum verkefnum.

×        Unnið einföld verkefni í hópi.

×        Útskýrt á einfaldan hátt áhrif vinnu sinnar á umhverfið.

×        Gert grein fyrir hugtakinu tækni og hvernig það tengist vinnu hans.

×        Fjallað á einfaldan hátt um þætti sem snerta menningu í tengslum við verkefni sín.

×        Tjáð sig á einfaldan hátt um viðfangsefni sitt.

×        Gengið frá eftir vinnu sína.

×        Lagt mat á eigin verk.

Í kennslu í myndmennt vinna nemendur fjölbreytt verkefni, ýmist í hóp eða í einstaklingsvinnu. Megináherslan er á sköpun nemenda og er kennslan blanda af sýnikennslu og eigin hugarfóstri nemenda.

Nemendur kynnast verkum þekktra listamanna og helstu aðferðum við listsköpun sem og fjölbreyttum tækjum og tólum sem notuð eru í faginu.

Mikil áhersla er lögð á sjálfstæði nemenda og þurfa þeir að taka ábyrgð á eigin vinnu og frágangi hverju sinni.

Nemendur fá að auki þjálfun í að kynna sköpun sína og verk fyrir öðrum.

Sjónlistir

×        Að nemandinn geti nýtt sér í eigin sköpun einfaldar útfærslur sem byggja á færni í meðferð lita- og formfræði og myndbyggingar.

×        Skapað myndverk í ýmsum tilgangi með margvíslegum aðferðum.

×        Tjáð tilfinningar, skoðanir og hugmyndaheim sinn í myndverki á einfaldan hátt.

×        Útskýrt og sýnt vinnuferli sem felur í sér þróun frá hugmynd að myndverki.

×        Unnið út frá kveikju við eigin listsköpun.

×        Þekkt og notað hugtök og heiti sem tengjast lögmálum og aðferðum verkefna hverju sinni.

×        Fjallað um eigin verk og annarra.

×        Þekkt og gert grein fyrir völdum verkum listamanna. Lýst þeim og greint á einfaldan hátt yrkisefnið og lýst þeim aðferðum sem beitt var við sköpun verksins.

×        Greint að einhverju leyti á milli mismunandi aðferða við gerð listaverka.

×        Greint á einfaldan hátt áhrif myndmáls í nærumhverfi hans.

×        Skilið mismunandi tilgang myndlistar og hönnunar